Reglur Deildu.net
Hér fyrir neðan verða taldar upp reglur sem settar eru á Deildu.net. Brot á þessum reglum getur, og mun enda með viðvörun. Alvarlegt eða ítrekað brot á reglum endar með banni. Eftir 3 viðvaranir fær notandi tafarlaust bann.
Almennar reglur
- 1.Gr Hlýða skal, og sýna stjórnendum Deildu.net virðingu.
- 2.Gr Deildu.net er P2P-samfélag. Þú skalt deila því efni sem þú sækir.
- 3.Gr Tilkynningakerfið er ekki til að leika sér að. Tilkynna skal aðeins notendur sé þess virkilega þörf.
- 4.Gr Stjórnendur áskilja sér rétt til að breyta eða búa til reglur án fyrirvara.
- 5.Gr Við viðvörun missa notendur 10 GB af deilimagni við hverja viku sem viðvörunin stendur.
Tjáningarreglur
- 1.Gr Íslenska er móðurmál á Deildu.net, Á Spjallborðinu, sem og í torrent-athugasemdum skal kurteisi ríkja allstaðar. Slepptu því frekar að tjá þig, frekar en að lítillækka og vera með ókurteisi og leiðindi.
- 2.Gr Spamm skal vera í draslinu, og aðeins í Draslinu. Sé spammað utan Draslsins leiðir það til tafarlausrar viðvörunar eigi skemur en tveggja vikna.
- 3.Gr Spamm í Markaðnum eða Eftirspurnaflokki leiðir til tafarlausrar viðvörunar.
- 4.Gr Blót, guðlast og þess háttar leiðindi eru ekki vel metin á Deildu.net
- 5.Gr Notendur skulu ekki senda inn hlekki á spamm síður. Sé þar með talið allar cindy-mindy-sandy-og-hver-önnur-cam-hóra-í-heiminum.com
- 6.Gr Biðja skal um serials, crack og svoleiðis í Eftirspurnaflokki, ekki annar staðar.
- 7.Gr Eftirspurnir má ekki bumpa/uppa. Söluþræði má bumpa/uppa einu sinni á sólahring. Sé það gert oftar verður þræðinum eytt.
- 8.Gr Tvípóstun er bönnuð og pirrandi. Viljir þú bæta við það sem þú sagðir skaltu nota "Breyta" valmöguleikann.
- 9.Gr Vinsamlegast sjáið til þess að allar spurningar sem þú hefur, sama hvort það sé tölvu- eða torrenttengt, eða hvort það sé í lagi að sofa hjá frænku sem er skyld í 6. ættlið í viðeigandi flokk.
- 10.Gr Eftirspurnir eru bannaðar utan Eftirspurnaflokksins.
- 11.Gr Þegar vitnað er í reglu á spjallborði skal gera það svona: "Vinsamlegast lesið 1. Grein tjáningarreglna Deildu.net"
Innsendingarreglur
- 1.Gr Merkja skal skrár rétt. Ef skráin sem þú ert að deila er R5, ekki merkja hana sem DVDRip.
- 2.Gr Sé NFO skrá send með torrentinu skal vera vit í henni.
- 3.Gr Deila skaltu efni sem þú sendir inn í lágmark 24 klst. eftir innsendingu.
- 4.Gr Efni sem hefur verið talsett/textað yfir á Íslensku er leyft.
Boðslyklar
- 1.Gr Það er stranglega bannað með öllu að selja boðslykil að Deildu.net. Brot á þessu endar með IP-banni.
- 2.Gr Notandi sem þú býður inn á Deildu.net er alfarið á þinni ábyrgð. Sé innboðinn notandi bannaður verður innbjóðandi bannaður í kjölfarið.
- 3. Gr Gættu þess vel að sá sem þú býður inn standist þínar kröfur hvað hlutfall varðar.
STRANGLEGA BANNAÐ ER AÐ AFRITA ÞESSAR REGLUR Á ÖNNUR VEFSVÆÐI ENN DEILDU.NET
